back in town..
Kr tapaði fyrir Val á föstudaginn en maður grenjar ekkert yfir einhverjum fótbolta. Við Erna "sáum" síðasta korterið af leiknum þar sem við sátum í grasinu hjá bílastæðinu og sötruðum öl, þannig að við sáum einstaka sinnum bolta í loftinu og svo einhverja hausa hlaupandi til og frá.Komum heim frá grundó í gær og ég náði að redda mér einni bólgu og einu mari á vinstri öxlina á laugardaginn, ég sé skaðabótamál í uppsiglingu!
Vá....kíkti á tónleikana með sigurrós í gærkvöldi, þetta voru fínir tónleikar hjá þeim, sniðug hugmynd líka að vera með svona freekeypis tónleika fyrir alla sem vilja.
Næsta helgi verður sú allra skemmtilegasta en ég ætla mér ekki að gera rass þá, verð bara heima í rólegheitum.
Svona var gólfið í bílnum á leiðinni vestur! Það var reglulega tæmt og fyllt aftur á!

ble..


